Íþróttabærinn Hafnarfjörður

Svipmyndir frá 1900 – 1980

Skilti 1 - 4

Skilti 1

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal um 1925

Sundkeppni fyrir framan Íshússlóðina um 1925. Ungmennafélagið 17. júní hafði forgöngu að sundkennslu í Hafnarfirði árið 1909.

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal um 1925

Þegar sundkennsla hófst í Hafnarfirði árið 1909 var kennt í sjónum við Hamarskotsmöl. Skáli er stóð á mölinni var leigður og notaður sem  búningaaðstaða fyrir sundiðkendur.

Skilti 2

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal 1925

Glímufélagið Hjaðningar sem stofnað var haustið 1905 mun vera fyrsta íþróttafélagið er sögur fara af í Hafnarfirði. Fjölmenni var á Hamarskotshamri að fylgjast með glímumönnum takast á.

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal um 1964

Hátíðardagskrá 17. júní á Hörðuvöllum. Það sem m.a. var á dagskránni var fánahylling, einsöngur, ávarp fjallkonunnar, skemmtiþáttur skáta og íslensk glíma.

Skilti 3

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal um 1925

Jónsmessuhátíð málfundafélagsins Magna 1925 á Akurgerðislóðinni, nú Vesturgata 6. Stúlkur úr Flensborg og Íþróttafélagi Hafnarfjarðar sýna leikfimi.

Ljósm. Sæmundur Guðmundsson. Ártal, um 1925.

Stúlkur úr fimleikaflokki Íþróttafélags Hafnarfjarðar. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurveig Steingrímsdóttir, Steiney Kristmundsdóttir, Svava Einarsdóttir Mathiesen, Guðbjörg F. Arndal, Sína Arndal kennari, Sigríður Jónsdóttir, Dagný Einarsdóttir Auðuns, Sigríður Egilsdóttir og Sjöfn Sigurðardóttir.

Skilti 4

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1930

Fimleikaflokkur Hafnarfjarðar sýnir listir sínar við Barnaskóla Hafnarfjarðar um 1930. Sýningar sem þessar, hélt félagið reglulega til að fjármagna kaup á áhöldum s.s. kubbum, hestum, kistum og þess háttar.

Ljósm. Ásgeir Long.  Um 1955

Fimleikafélagið Björk var stofnað að undirlagi Þorgerðar Gísladóttur 1. júlí 1951. Bjarkarstúlkur sýna fimleika í leikfimishúsinu við Barnaskóla Hafnarfjarðar.

Skilti 5 - 9

Skilti 5

Ljósmyndari óþekktur. Um 1950.

Íþróttamenn úr drengjaflokki Íþróttafélags Hafnarfjarðar sýna æfingar á íþróttasvæðinu á Hörðuvöllum um 1950.

Ljósm. Anna Jónsdóttir. Ártal 1939

Hallsteinn Hinriksson ásamt fimleikaflokki drengja árið 1939. Fremsta röð frá vinstri: Magnús Vilhjálmsson, Rósmundur Oddson, Hallsteinn Hinriksson þjálfari, Skarphéðinn Kristjánsson og Hafsteinn Baldvinsson. Miðröð: Sveinn Jónasson, Bjarni Ágústsson, Árni Gunnlaugsson, Þórhallur Jónsson, Aðalsteinn Jónasson og Ragnar Konráðsson. Aftasta röð: Ríkarður Kristjánsson, Stefán Gunnlaugsson, Ólafur Guðmundsson, Guðvarður Elíasson og Baldur Árnason

Skilti 6

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal 1958

Á 50 ára afmælishátíð Hafnarfjarðar hélt Fimleikafélagið Ernir sýningu á Thorsplani við Strandgötu.

Ljósm. Anna Jónsdóttir. Ártal 1939

Fimleikaflokkur FH. Fremsta röð frá vinstri: Gísli Sigurðsson, Guðjón Sigurjónsson, Gunnar Gíslason, Sveinn Kr. Magnússon, Geir Jóelsson og Jón Þorbjörnsson. Miðröð frá vinstri: Hallsteinn Hinriksson þjálfari, Ragnar Emilsson, Haraldur Sigurjónsson, Kjartan Markússon, Magnús Guðmundsson, Valgeir Óli Gíslason og Sigurður Gíslason formaður FH. Aftasta röð: Sigurður Sigurjónsson, Gunnar Magnússon, Oliver Steinn Jóhannesson, Steingrímur Atlason, Jóhannes Einarsson og Sveinbjörn Pálmason.

Skilti 7

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1940.

Skólamölin við Barnaskólann var eitt helsta æfingasvæði frjálsíþrótta í Hafnarfirði. Hér æfir Hallsteinn Hinriksson stangarstökk.

Ljósmyndari óþekktur. Um 1950

FH hóf að leggja stund á frjálsar íþróttir árið 1934. Í fyrstu var æfingaaðstaða á mölinni fyrir framan barnaskólann en nýtt æfingasvæði á Hörðuvöllum var tekið í notkun í ágúst 1944. Hér æfir íþróttamaður kúluvarp á íþróttasvæðinu á Hörðuvöllum um 1950.

Ljósmyndari óþekktur. Um 1950

Íþróttamenn á hlaupaæfingu við Barnaskóla Hafnarfjarðar um 1950. Frá vinstri: Sævar Magnússon, Ottó Jónsson, Oliver Steinn Jóhannesson og Jóhannes Einarsson.

Skilti 8

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1940

Oliver Steinn Jóhannesson, FH-ingur keppir i þrístökki um 1940.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1940.

Ein helsta æfingaaðstaða til frjálsíþrótta iðkunar var á malarvellinum framan við Barnaskólann við lækinn. Hér er æft í stangarstökki um 1940.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1945

Boðhlaupssveit FH árið 1945. F.v. Oliver Steinn Jóhannesson, Þorkell Jóhannesson, Sveinn Kr. Magnússon og Sævar Magnússon.

Skilti 9

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1920

Knattspyrnufélagið 17. júní á Hamarskotshamri um 1920. Fremri röð f.v.: Tómas Ólafsson, Jón Mathiesen, Hafsteinn Linnet, Halldór M. Sigurgeirsson og Jakob Sigurðsson. Aftari röð f.v.: Kristján Sigurðsson, Janus Gíslason, Ólafur Ólafsson, Árni Mathiesen, Óskar Jónsson og Friðgeir Sigurðsson.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1920

Knattspyrnufélögin Framsókn og 17. júní í vígsluleik á nýjum velli á Hvaleyrarholti í ágúst 1920. Bæði félögin stóðu að gerð vallarins.

Ljósm. Sæmundur Guðmundsson. Ártal 1923

Knattspyrnufélagið 17. júní vann til eignar bikarinn sem er fyrir miðri myndinni á haustmóti árið 1923.

Skilti 10 - 14

Skilti 10

Ljósm. Anna Jónsdóttir. Ártal 1956

Stjórn Íþróttabandalags Hafnarfjarðar eins og hún var skipuð í febrúar 1956. Efri röð f.v.: Vilhjálmur G. Skúlason, Hermann Guðmundsson, Sigurður Gíslason og Ólafur Pálsson. Neðri röð f.v.: Hjörleifur Bergsteinsson, Þorgerður M. Gísladóttir og Guðjón Sigurjónsson.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1958

Fjölmenni fylgdist með vináttuleik ÍBH og úrvalsliði Reykvíkinga á 50 ára kaupstaðarafmæli Hafnarfjarðar sumarið 1958.

Ljósmyndari Kristján Guðmannsson. Ártal 1971

Þegar Íþróttahúsið við Strandgötu var formlega tekið í notkun, þann 8. apríl 1971 léku ungir handknattleiksmenn Hauka og FH upphitunarleik, fyrir leik Hauka og danska liðsins Efterslægten.

Skilti 11

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1925

Fyrsti opinberi leikurinn í handknattleik á Íslandi var háður á Hvaleyrarholtsvellinum þann 28. júní 1925. Konur léku gegn körlum sem sigruðu með sex mörkun gegn einu.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1944

Á Íslandsmótinu sem haldið var á Sýslumannstúninu 17. júní 1944 tókust á FH og Haukar í meistaraflokkur kvenna.

Ljósm. Anna Jónsdóttir. Ártal 1940

Meistaraflokkur kvenna, A og B lið Hauka í handbolta árið 1940. Efri röð f.v.: Elsa Böðvarsdóttir, Ruth Guðmundsdóttir, Þórunn Flygenring, Ester Jónsdóttir, Guðrún Kristófersdóttir og Kristín Borgþórsdóttir. Fremri röð f.v.: Guðný Guðbergsdóttir, Svanhildur Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Sigurrós Oddgeirsdóttir og Kristín Þorvarðardóttir.

Skilti 12

Ljósm. Anna Jónsdóttir. Ártal 1941.

Handknattleikslið Hauka, 2. flokkur vorið 1941. Fremri röð f.v.: Friðþjófur Sigurðsson, Þorsteinn Jónsson, Jón Hansson og Þorlákur Sigurðsson. Aftari röð f.v.: Júlíus Sigurðsson, Guðmundur Eyþórsson, Sævar Magnússon og Kristinn Sigurjónsson.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1945

Haukar og FH keppa í handbolta á Hafnarfjarðarmóti karla á Sýslumannstúninu.

Ljósm. Gunnar Rúnar Ólafsson

Háður var eftirminnilegur leikur í handknattleik á milli KR og FH á Thorsplani í tilefni af 50 ára afmæli Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Skilti 13

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal 1921.

Knattspyrnufélagið 17. júní hélt víðavangshlaup 1. maí 1921. Var hlaupið frá lækjarbrúnni kl. 3 um eftirmiðdaginn. Þrenn verðlaun voru veitt, silfurbikar fyrir 1. sæti en silfurpeningar fyrir 2. og 3. sæti. Þáttakenndur voru úr félögunum Framsókn og 17. júní. Frá vinstri: Sigurður Gunnarsson (nr.8), Marinó Sigurðsson (nr.5), Bjarni Bjarnason skólastjóri sem ræsir keppendur, Ólafur Halldórsson (nr.4), Jakob A. Sigurðsson (nr. 3), Gísli Sigurðsson (nr.2) og Árni Mathiesen (nr. 1). Lengst til hægri eru lögregluþjónarnir Þorleifur Jónsson og Stígur Sæland.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1969.

Víðavangshlaup Hafnarfjarðar var endurvakið á sumardaginn fyrsta 1959 eftir að hafa legið í dvala í um 20 ár. Var hlaupið í hring frá Barnaskólanum, út Tjarnarbraut og upp á Reykjanesbraut, þaðan niður á Lækjargötu og endað við Barnaskólann. Lúðrasveit Hafnarfjarðar lék nokkur lög áður en hlaupið hófst.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1965.

Jón Mathiesen kaupmaður aðstoðar aðframkominn keppanda í mark í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar á sumardaginn fyrsta 1965.

Skilti 14

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1950

Skíðaskálinn í Hveradölum fullbyggður var vígður við hátíðlega athöfn 21. nóvember 1948.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1950

Skíða- og skautafélag Hafnarfjarðar var stofnað 25. október 1935. Hér má sjá æfingar í stökki.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1950

Félagsmenn Skíða- og skautafélags Hafnarfjarðar fóru jafnan upp á Hellisheiði en sumir létu sér nægja að renna sér niður Setbergshlíðina.

Skilti 15 - 19

Skilti 15

Ljósm. Haukur Sigtryggsson. Ártal 1953

Sundhöll Hafnarfjarðar var opnuð 13. júní 1953 með hátíðlegri viðhöfn og sundmóti eftir að byggt var yfir hana.

Ljósm. Kristján Guðmannsson. Ártal 1971

Lokið var við byggingu Íþróttahússins við Strandgötu árið 1971 en það var tekið í notkun við hátíðlega athöfn þann 8. apríl það ár.

Skilti 16

Ljósm. Kristján Guðmannsson. Ártal 1976

Íþróttahús knattspyrnufélagsins Hauka við Flatahraun sem áður hafði verið fiskverkunarhús. Sjálfboðaliðar unnu við að breyta því og lagfæra fyrir íþróttastarfsemi. Endurbótum á þessu íþróttahúsi Hauka lauk haustið 1976.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1990

Í febrúar 1989 var hafist handa við að reisa nýtt íþróttahús FH í Kaplakrika. Íþróttahúsið var vígt með viðhöfn og fjölþættri íþróttadagskrá þann 31. mars 1990.

Skilti 17

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1965

Hressir sigurvegarar strákamótsins á Hringbrautarvelli við Flensborgarskóla 1965.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal 1965

Framtíðar íþróttaunnendur og þjálfari þeirra á Hvaleyrarvelli um 1980.

Skilti 18

Ljósm. Kristján Guðmannsson. Ártal 1978

Þorvaldur Ásgeirsson kennir ungum „golfurum“ réttu sveifluna hjá Golfklúbbnum Keili á Hvaleyri sumarið 1978.

Ljósm. Kristján Guðmannsson. Ártal 1978

Nýr 9 holu golfvöllur Golfklúbbsins Keilis var tekin í notkun 9. júlí 1967. Hér má sjá unga fólkið æfa sveifluna undir handleiðslu Þorvaldar Ásgeirssonar.

Skilti 19

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1945

Margmenni var samankomið til að fylgjast með sundkeppni sem haldin var á opnunarhátíð Sundhallar Hafnarfjarðar 13. júní 1953. Sundhöllin hafði áður verið óyfirbyggð frá því hún var reist 1943.

Ljósmyndari óþekktur. Ártal um 1985

Sundfélag Hafnarfjarðar var stofnað 19. maí 1945.  Áhugasamir áhorfendur fylgjast með sundkeppni í Sundhöll Hafnarfjarðar um 1985.

Skilti 20 - 22

Skilti 20

Ljósm. Kristján Guðmannsson. Ártal 1978

Siglingaklúbburinn Þytur var stofnaður 19. apríl 1975 og voru stofnendur hans um 70 manns. Hér má sjá unga áhugamenn um siglingar gera sig klára til að fara á haf út.

Ljósm. Kristján Guðmannsson. Ártal 1978

Þegar Siglingaklúbburinn Þytur var stofnaður 1975, var siglingaraðstaðan við „Stálvík“ í Arnarvogi.

Skilti 21

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal um 1930

Við Gatklett út af Krosseyrarmölum kenndi Hallsteinn Hinriksson sund frá árinu 1929 þar til Sundhöll Hafnarfjarðar var reist, árið 1943.

Ljósm. Guðbjartur Ásgeirsson. Ártal um 1930

Hallsteinn Hinriksson og sundnemendur hans í grýttu hrauninu þar sem sundkennslan fór fram frá 1929 til 1943. Á myndinni eru: Fremri röð fv.: Minna Breiðfjörð, Gyða Breiðfjörð, Kristín Jónsdóttir, Kristín Magnúsdóttir, Sveindís Guðbjartsdóttir, Eygerður Björnsdóttir, Gústaf Sigurðsson, Sæmundur Ágústsson og Ásmundur Böðvarsson. Aftari röð fv.: Hallsteinn Hinriksson, Hulda Þórðardóttir, Svala Sigurðardóttir, Inga Ágústsdóttir, Guðrún Vilhjálmsdóttir, Guðrún Ívarsdóttir, Heiða Jensdóttir, Aðalheiður Bjargmundsdóttir, Steinunn Níelsdóttir, Friðberg Guðmundsson, Ingibjörg Jóelsdóttir, Gísli Hildibrandsson, Valberg Gíslason og Baldur Snæland.

Skilti 22

Ljósm. óþekktur. Ártal um 1950.

Félagsmenn og konur úr Hestamannafélaginu Sörla í skemmtiferð félagsins á Víðistöðum um 1950. Lengst til vinstri er Kristrún Þórðardóttir frá Hvassahrauni. Hestamannafélagið Sörli var stofnað 7. febrúar 1944 í Hressingarskálanum sem stóð við Standgötu, stofnendur voru um 30 manns.

Ljósm. Kristján Guðmannsson. Ártal 1978

Nýr skeiðvöllur Hestamannafélagsins Sörla, á svokölluðum réttarflötum við Kaldárselsveg, var vígður með fyrstu kappreiðum sem félagið hélt, 16. ágúst  1953. Var skeiðvöllurinn nefndur „Sörlavellir“. Myndin er af óþekktum hesti og reiðmanni.