Bungalowið var byggt árið 1920 fyrir Douglas Bookless sem rak ásamt bróður sín Harry Bookless Bros. Ltd, umfangsmikla útgerð frá Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Bookless-bræður voru áhrifamiklir og langstærstu atvinnurekendur í bænum um árabil. Þeir komu með alls konar nýjungar tengdar fiskveiðum, útgerð og fiskverkun sem Íslendingar þekktu ekki á þessum tíma, til dæmis lögðu þeir brautarteina frá þurrkhúsunum upp á saltfiskreitina. Eftir daga Bookless Bros. tók annað breskt fyrirtæki, Hellyer Bros. Ltd, frá Hull við eignum fyrirtækisins og rak blómlega útgerð um tíma. Húsið var opnað eftir endurbætur árið 2008 sem hluti af Byggðasafni Hafnarfjarðar. Þar er að finna sýningu um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar auk þess sem má sjá stássstofu þeirra Bookless-bræðra. Myndagallerý