Í Hellisgerði, skrúðgarði Hafnarfjarðar, er að finna útisýningu um álfa og huldufólk í nærumhverfi bæjarins. Trúin á huldar vættir hefur fylgt Íslendingum frá fornu fari og á sér djúpar rætur í virðingu fyrir lifandi landslagi og leyndardómum náttúrunnar.

Skiltin rekja þekktar álfa- og huldufólkssögur úr Hafnarfirði og við hverja sögu fylgir QR-kóði með hlekk á staðinn í Google Maps til að setja sig í spor frásagnanna.