Hvernig héldu Íslendingar jól áður fyrr? Hér má fræðast um heimasmíðuð jólatré sem lýst voru með tólgarkertum, aðventukransinn sem barst hingað á fjórða áratug 20. aldar, laufabrauðið, fábrotinn mat á Þorláksmessu og leiki barna um jólin. Einnig er sögð sagan af jólunum 1901, þegar gufuskipið Hekla kom laskað til Hafnarfjarðar á aðfangadagskvöld og fimmtíu manns unnu við uppskipun alla jóladagana. Textunum fylgja gamlar ljósmyndir af jólahaldi Hafnfirðinga á 20. öld. Mynd: Strandgata um jólin 1953.