Búðarglugginn

Byggðasafn Hafnarfjarðar setur upp nýja þemasýningu í forsal Pakkhússins á hverju vori. Núverandi sýning fjallar um Frú Þorbjörgu Bergmann, fyrsta hafnfirska safnarann.

Sýningin fjallar um líf og söfnunarstarf Þorbjargar Sigurðardóttir Bergmann sem var fædd í Pálsbæ á Seltjarnarnesi 13. apríl árið 1876. Að loknu Kvennaskólanámi árið 1898 réðst Þorbjörg í vinnu á Bíldudal, þar kynntist hún mannsefni sínu, Sigfúsi Bergmann en þau gengu í hjónaband aldamótaárið 1900. Sama ár fluttu þau til Hafnarfjarðar og urðu fljótlega áberandi í bæjarlífinu. Þorbjörg byrjaði snemma að safna þjóðlegum munum og virðist hennar helsta markmið hafa verið að bjarga þeim frá glötun. Hún gerði sér grein fyrir þeim breytingum sem voru að verða á íslensku samfélagi og nauðsyn þess að varðveita hina ýmsu muni sem segja má að hafi verið dæmigerðir í gamla íslenska bændasamfélaginu. Um 400 munir voru í safni Þorbjargar Bergmann sem færðir voru Reykjavíkurfélaginu árið 1952 og síðar gefnir Árbæjarsafni árið 1958. Munirnir mynduðu grunninn að Árbæjarsafni. Á sýningunni eru munir sem fengnir voru að láni frá Borgarsögusafni; Árbæjarsafni og frá afkomendum Þorbjargar.

  • Eftir samkomulagi - Heimsókn hópa þarf að bóka